Síðustu helgi fórum við íslendingarnir ásamt 20 öðrum skiptinemum í ferðalag til Puerto Vallarta sem er strandbær við kyrrahafið. Við, Siggi og Sigurjón þurftum að taka rútuna eftir skóla þar sem við þurftum að sitja ein og ein hjá mismunandi mexikönum (hrjótandi, feitum, andfúlum...) mjög spennandi. Uppúr miðnætti komum við loksins og rakasta loft sem við höfum nokkurn tímann fundið tók á móti okkur. Ekki alveg það sama og við erum vön í 1500 metrum fyrir ofan sjávarmál í Guadalajara. Að sjálfsögðu eins og sannir íslendingar drifum okkur beint í bæinn og djömmuðum til morguns.




Laugardagurinn fór að mestu leyti í sólbað hjá hópnum enda komin tími til að maður taki einhvern lit hérna í landi eilífrar sólar! Mestu vonbrigðin voru samt ströndin sjálf því hún var svo gróf á köflum að það var varla hægt að labba þar. Við skelltum okkur svo á jetski sem var klárlega ein mesta skemmtun ferðarinnar, fyrir utan sólbrunann sem kom í ljós daginn eftir hjá einum af glókollum hópsins (...hmm maður man kannski eftir sólarvörninni næst!). Sjokk ferðarinnar átti sér stað þegar við vorum að labba á ströndinni og gamall maður labbaði fyrir framan okkur, svo stoppaði hann, snéri sér að sjónum, reif út vininn og lét allt flakka í sandinn! Hann stóð svona 5 metrum frá okkur og fullt af öðru fólki sem var þarna! Speeeeees...



Á sunnudaginn var svo kvöldið byrjað með stæl þar sem við horfuð á úrslitaleikinn í Superbowl. Margarítu-tilboðið á barnum fór að sjálfsögðu ekki fram hjá neinum!

Hópurinn + Manuel, Vicki, Edgar og Kari




Eftir leikinn voru allir veeeel hressir og gleðin hélt áfram fram undir morgun...




hmm akkúrat þegar þessi mynd var tekin kom eigandi bílsins til baka..
Við höfum ALDREI hlaupið jafn hratt í burtu! :P
Á mánudaginn var frí í skólanum svo við fengum einn dag í viðbót fyrir tanið. Rútan átti svo að fara heim kl 5 en útaf því að helmingurinn af hópnum voru tillitslausir, sjálfmiðaðir, ógeðis frakkar þá létu þau okkur öll hin bíða í klukkutíma í rútunni því þau ákváðu að vera aðeins lengur á ströndinni!!!! HALLÓ!!! Það er ekki alveg í lagi með sumt fólk sko....
HÉR eru svo fleiri myndir frá ferðinni og pókerkvöldinu!
Í þessari viku voru hlutapróf í flestum áföngum sem gengu upp og niður. Það er alveg pínu erfitt að hafa prófin líka á ensku þótt maður sé vanur að lesa námsefnið á ensku. En við fáum út úr þeim í næstu viku svo við vonum bara það besta :)
Vikan var extra stutt og eins og vanalega ótrúlega fljót að líða og komin helgi aftur. Okkur var boðið í grillveislu í húsinu hjá strákunum sem endaði í partý sem aðeins fleiri komu í en gert var ráð fyrir. Löggan lét sjá sig uppúr 3 þegar það var ennþá dúndrandi tónlist og allt fólkið komið uppá þak með læti. Æði kvöldsins var klárlega melóna með bacardi! Nammm ....

Sean varð svo djarfur að þora í klippingu hérna, rosa flottur!

Þetta er Brendon og er með okkur í spænsku, hafiði séð ljótara skegg??

Stephanie og Omar

Erna og Halla voru eiturhressar, á sama tíma var Herdís að fá sér smá blund :)

Melónurnar frægu!

Erna var svona mest allt kvöldið!

Diego, Anna og Alice - húsfélagar strákanna

Silva og Diego melónumeistarar!

Jújú hún vaknaði eftir 2 tíma og tók þátt í fjörinu með okkur ;)
Þrátt fyrir misgóða heilsu hjá hópnum þá var ekki annað í stöðunni en að hressa sig við á laugardeginum því við áttum miða á svokallaðann EL Classico um kvöldið. Fótboltaleikur milli Chivas sem er besta liðið í borginni og Atlas sem er litla liðið. Við hittumst nokkuð mörg heima hjá strákunum og fórum svo öll saman á leikinn. Við urðum fyrir ágætis menningarsjokki þegar mexikanarnir keyrðu á völlin því hér er það mjög eðlilegt að drekka og keyra í einu. En við bara spenntum beltin og héldum okkur fast og svo vissum líka alveg að þeir voru bara á fyrsta bjór. Við allavegana komumst heil á leiðarenda en hugsum okkur tvisvar um áður en við setjumst uppí bíl með þeim aftur.. :)

Aðeins of flottar í Chivas-búningunum!

Herdís og Miguel bístjórinn okkar ;)

Hjá leikvanginum..

Anne og Silva Chivas aðdáendur

Erna og Siggi að deyja úr spenningi!

Omar og leikvangurinn


Smá tekíla til að koma sér í gírinn ;)
Ótrúlega skemmtilegt kvöld en heilsan leyfði ekki meira tjútt svo flest okkar fóru heim eftir leikinn og snemma í háttinn.
Internetkallarnir létu að sjálfsögðu ekki sjá sig í vikunni og en “lofa” að koma á þriðjudaginn. Eftir að hafa hringt 3svar í síðustu viku og blótað þeim og öskrað þá vita þeir að þeir eiga ekki von á góðu ef þeir drulla sér ekki hingað bráðum!
Adios amigos!
Anna & Diza